Bláskógabyggð varð til sem sveitarfélag 9. júní 2002 við sameiningu þriggja sveitarfélaga, Biskupstungnahrepps, Laugardalshrepps og Þingvallahrepps. Nýtt nafn sveitarfélagsins er fengið að láni úr Þingvallasveit og tengist birkinu og bláma vatnsins. Íbúar nálgast nú 1000 (973) ReykholtGrunnur að byggðakjarnanum í Reykholti var lagður árið 1928, þegar barnaskóli var reistur. Þá hafði eigandi jarðarinnar Stóra-Fljóts gefið Biskupstungnahreppi landskika undir bygginguna. Þetta var eitt fyrsta skólahús sem reist var í dreifbýli á Íslandi og þótti mjög glæsileg framkvæmd. Í Reykholti eru nú nálægt 200 íbúar.
Gömul munnmælasaga „Ljósið í hlíðinni“ segir frá því að heimilisfólkið á Stóra-Fljóti, sem þá stóð vestan þjóðvegar, hafi oftar en einu sinni séð dularfullt ljós í Hverahlíðinni, þar sem nú stendur elsta skólahúsið. Þegar betur var að gáð fannst engin skýring, enda engin byggð á svæðinu. Eftir að skólinn reis í hlíðinni og gróðurhúsabyggð tók að aukast þóttust ýmsir sjá samhengi þarna á milli“Jarðhiti fannst í Reykholti á fyrri hluta 20. aldarinnar og myndaðist fljótlega byggð í kringum jarðhitasvæðið. Reykholtshver er forn goshver sem gýs á 10 mín fresti og gefur 14 l á sekúndu af 100 gráðu heitu vatni, sem nýtt er til að hita upp heimili og gróðurhús á svæðinu. Til eru sagnir um að Skálholtssveinar hafi verið sendir til að stífla hann fyrr á öldum, enda hverir áður taldir hin mestu vandamál. Skepnur fóru sér iðulega að voða í þeim eða affalli þeirra að ekki sé talað um hjátrúna varðandi það hvaðan allur þessi hiti væri kominn. Hverinn var fyrst nýttur til upphitunar barnaskólans 1928 og síðan fljótlega til upphitunar gróðurhúsa og annarra mannvirkja. Borað var um 20 metra frá honum 1976 og aftur 1990 við skólahúsið vegna aukinnar notkunar. Steypt hefur verið yfir hverinn svo fátt minnir á forna frægð nema ef vera skyldi strompurinn, sem losar hann við gufuna á nokkurra mínútna fresti. Af Reykholtinu er víðsýnt þótt holtið sé ekki nema 116 metra yfir sjávarmáli.Stóra-Fljót markaðist af Fellslæk í norðri, Tungufljóti í austri, Reykjavöllum í suðri og Litla-Fljóti í vestri. Býlið stóð í upphafi vestan þjóðvegar skammt frá bænum Brautarhóli en var flutt undir brekkuna neðan Reykholtshvers árið 1939. Þáverandi eigandi Þorsteinn Loftsson byggði fyrstu garðyrkjustöðina í Reykholti á flötinni fyrir neðan. Fyrsta gróðurhús í uppsveitum Árnessýslu, sem hitað var upp með hverahita byggði aftur á móti Stefán Sigurðsson skólastjóri barnaskólans árið 1932. Það stóð á stalli í brekkunni á milli gamla skólahússins og Reykholtshvers. Upp úr 1945 var síðan lagður grunnurinn að flestum garðyrkjustöðvunum sem fram til ársisn 1961 voru eina byggðin í Reykholti auk skólans.Árið 1961 var vígt nýtt samkomuhús sveitarinnar, sem hlaut nafnið Aratunga í höfuðið á Ara Fróða. Ný sundlaug var vígð 1975 og Íþróttahús 1999. Verksmiðja var reist árið 1990. Skólinn var stækkaður árið 1959, 1990 og aftur nýlega. (Heimild / Sveinn Sæland) Grunnskóli Bláskógabyggðar Grunnskóli Bláskógabyggðar tók til starfa 1. ágúst 2003 en áður voru starfandi tveir aðskildir skólar Reykholtsskóli í Biskupstungum og Grunnskólinn að Laugarvatni.Skólatími er samfeldur og hefst að morgni. Börn sem búa fjærri skóla er ekið með skólabílum. Nemendur á grunnskólaaldri eru tæplega 200.Í tengslum við skólann fer fram tónlistarkennsla á vegum Tónlistarskóla Árnessýslu. Íþróttastarf er mikið fyrir alla aldurshópa.
ÁlfaborgLeikskólinn Álfaborg var stofnaður í Sumarbúðunum í Skálholti í október 1986. Í fyrstu var hann rekinn af foreldrum. Í mars 1989 var ákveðið að leikskólinn yrði í gamla skólanum í Reykholti, þar sem hann er enn í dag. Haustið 1990 tók Biskupstungnahreppur við rekstrinum af foreldrum.